Velkomin á Blikastaði 14. júní

Þér er boðið að kíkja í heimsókn til okkar á Blikastaði þann 14. júní.
Gestir og gangandi geta kynnt sér fyrirhugaða uppbyggingu á svæðinu og samhliða notið léttra veitinga og skemmtilegrar leiksýningar. Fulltrúar frá arkitektastofunni Nordic verða með leiðsögn um svæðið og fræðslu um framtíðarsýn Blikastaða. Leikhópinn Lottu þarf vart að kynna. Í 18 ár hafa þau ferðast um landið þvert og endilangt og glatt bæði börn og fullorðna með sínum litríku, sprellfjörugu og stórskemmtilegu sýningum.
Við bendum á að leiksýningin og öll önnur dagskrá er utandyra, svo við hvetjum gesti til að klæða sig eftir veðri.
DAGSKRÁ:
12:30 Verið hjartanlega velkomin á Blikastaði
13:00 Arkitektar og hönnuðir verða með fyrri leiðsögn um svæðið
13:30 Leikhópurinn Lotta sýnir nýja sumarleikritið sitt, Hrói Höttur (sýning tekur u.þ.b. 1 klst.)
15:00 Seinni leiðsögn um svæðið
17:00 Dagskrá lýkur Baunir og ber verða á svæðinu og bjóða upp á rjúkandi gott kaffi og kruðerí. Stemning og kryddbrauð í boði Dóra DNA