Deiliskipulag fyrsta áfanga Blikastaðalands auglýst

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkti á fundi sínum 14. janúar 2026 að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir fyrsta áfanga Blikastaðalands samhliða breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2011-2030.
Gert er ráð fyrir allt að 1260 íbúðum auk þjónustu, grunn- og leikskóla í þessum 1. áfanga svæðisins. Markmið nýs skipulags er að móta blandaða og vistvæna íbúðabyggð sem tekur mið af samgöngu- og þróunarási svæðisins og fyrirhugaðri Borgarlínu. Áhersla er á samspil byggðar og náttúru, blágrænar ofanvatnslausnir og hönnun sem styrkir lífsgæði íbúa og nærumhverfi. Skipulagið markar nýmæli í skipulagsgerð á landsvísu með því að náttúrumiðuð hönnun er burðarás í mótun byggðarinnar.
Opið er fyrir athugasemdir í skipulagsgátt frá 15. janúar 2026 til 27. febrúar 2026.
Verkefnið á vef Mosfellsbæjar: mos.is/blikastadaland
Sjá umfjöllun um málin og gögn í skipulagsgátt: